top of page

Upphafið

  • Krabbameinsfélagið Framför
  • 19 hours ago
  • 1 min read

Krabbameinsfélagið Framför, félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálsi og

aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja

karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra og

aðstandendur. Aðal hvatamaður að stofnun félagsins var Oddur Benediktsson.

Krabbameinsfélagið Framför starfar í dag á landsvísu sem sjálfstætt áhugamannafélag

og er aðili að Krabbameinsfélagi Íslands og í samstarfi við Ljósið.


Oddur féll frá 17. ágúst 2010 þá 73 ára að aldri. Hann vann við tölvur frá 1961, var í stjórn IBM á Íslandi, yfirmaður tæknideildar Skýrr auk þess að kenna við HÍ, síðan dósent við stærðfræðiskor og nýstofnaðri tölvunarfræðiskor 1982. Hann var frumkvöðull í tölvunarfræðum og margverðlaunaður í þeim fræðum auk þess að vera gestaprófessor við erlenda háskóla.


Oddur var líka mannvinur og stofnandi og fyrsti formaður Krabbameinsfélagsins Framför. Hann var í öflugum hóp, sem setti upp vefsíður, skrifaði bækur og vakti athygli landsmanna á að það yrði að gera eitthvað í vandamálum tengdum krabbameini. Í þessum hóp voru fleiri kraftmiklir einstaklingar eins og Þráinn Þorvaldsson, Hinrik Greipsson, Sigurður Skúlason, Henry Granz svo einhverjir séu nefndir.


Steindór Ögmundsson,
Steindór Ögmundsson,

Á aðalfundi hjá Krabbameinsfélaginu Framför þann 8. apríl 2019 var félagið endurreist

fyrir forgöngu stuðningshópsins Frískir menn og kosin ný stjórn sem byrjaði að

skilgreina og undirbúa gjörbreytta stefnumótun í uppbyggingu á framtíðarstarfi

félagsins. Félagið samþykkti síðan á árinu 2020 öflugan grunn að nýrri hugmyndafræði

og markvissa framtíðar stefnumótun um starfsemi félagsins.

 
 
 

Comments


bottom of page