top of page

Jeppaferð Framfarar september 2025

  • Krabbameinsfélagið Framför
  • 19 hours ago
  • 2 min read

Eigum við ekki að tala um eitthvað annað en krabbamein og skella okkur í jeppaferð?

Menn ráku upp stór augu og sperrtu eyru en strákurinn í mönnum birtist snarlega. Hugmyndin var seld þannig að þetta væri óvissuferð og á færi jeppa og jepplinga, eftir á töldu sumir að hér hafi verið ofmat á jepplingum.


Laugardagurinn 13. september rann upp bjartur og fagur eftir miklar rigningar fyrr í vikunni. Komið var saman við bensínstöðina við Rauðavatn klukkan 10, fjórir jeppar og 9 vaskir strákar til í allt, enginn jepplingur. Ferðaplanið var kynnt.


Áfangi 1. Ekið upp að fangelsinu á Hólmsheiði og þaðan í austurátt eftir línuvegi sem liggur að Hellisheiðarvirkjun. Þar sem við strákarnir vorum komnir í gírinn var snarlega hætt við að velja auðveldustu leiðina. Stoppað var hér og þar - útsýnis notið því það var önnur fjallasýn en sú sem sést frá aðalveginum. Áð í Hellisheiðarvirkjun, kaffi skellt í bolla og eftir hópmyndatöku hlaupið út í jeppana.


Áfangi 2. Nú var stefnt út á Hringveginn, uppfyrir Hveradalinn og inn á Vatnaleiðina. Auðvitað brunuðum við slóðann upp á Skarðsmýrarfjall (sáum ekki bannskiltin fyrir en við vorum komnir niður), að borholunum sem þar eru, við góndum niður í Innstadal, upp Hengilinn og yfir höfuðborgarsvæðið. Nú lá leiðin meðfram Skarðsmýrarfjalli og kíkt á skátaskálana sem enn eru eftir þar. Ein brekkan var það krefjandi, vegna rigningar deginum áður, að gefa þurfti hressilega í að komast upp í einni tilraun. Nú komum við að Hengilsdalsá og ókum yfir hana marg oft þar sem hún rennur í bugðum. Einn missti sig og brunaði yfir eitt vaðið með miklum gusugangi. Rétt áður en komið var slóðanum sem liggur inn að Ölkelduhálsi settumst við niður í skjóli eins og rollur undir barði og nutum nestisins, kaffi og flatkökur með hangiketi og kæfu áður en var haldið heim á leið. Við karlarnir erum strákar inn við beinið, nema hvað og leggjum aftur í hann í haust.



 
 
 

Comments


bottom of page