Nýji bæklingurinn
- Krabbameinsfélagið Framför
- 19 hours ago
- 1 min read
Þrír bæklingar voru prentaðir hjá Krabbameinsfélaginu Framför þegar félagið var sett í gang af krafti. Í þeim var mikið af margs konar mjög góðum upplýsingum en eins og gengur þá hefur margt breyst svo farið út í að sameina þær upplýsingar og koma fyrir í einum bækling. Reynt var að halda öllum mikilvægum upplýsingum inni og þótti það takast nokkuð vel.
Þessum nýja bækling var svo dreift á Landspítalann, læknana í Glæsibæ, Ljósið og Krabbameinsfélag Íslands sem dreifir þeim á aðildarfélög þess víða um land. Auk þess á fundum og kynningum.
Nýji bæklingurinn er aðallega hugsaður fyrir þá sem hafa þegar greinst með blöðruhálskirtilskrabba og aðstandendur - hvert er hægt að snúa sér ásamt gagnlegum upplýsingum, til dæmis hvað eigi að spyrja læknana um. Einnig um fleiri stuðningsnet, smá tölfræði og margt fleira.





Comments