Bókasafnið í Hellinum
- Krabbameinsfélagið Framför
- 19 hours ago
- 1 min read
Í höfuðstöðvum Krabbameinsfélagsins Framför er að finna hið ágætasta bókasafn – eða öllu heldur upplýsingasafn þar sem eru 42 bakkar með ýmsu sem viðkemur krabbameini í blöðruhálsi ásamt sýnishornum. Mest af efninu er tilkomið þannig að karlarnir koma með ýmsar upplýsingar um sig og sinn feril, það er síðan sett saman og loks yfirlesið af fagfólki.
Sem dæmi eru …
Upplýsingar um og hvað er boðið uppá hjá Ljósinu, Krabbameinsfélagi Íslands, Brakkasamtökunum, Lárusi sjúkraþjálfara, Sorgarmiðstöðinni, Píeta-samtökunum og fleirum - hvað karlar og aðstandendur geti sótt í til að styrkja sig, maka og aðstandendur í sínum málum.
Hver eru fyrstu skrefin, um PSA og Gleason, bæklingur frá Framför, heilsumál, grindarbotnsþjálfun, þvagleki auk lausnarmiðaðra lausna, kynlíf með upplýsingum um lyf og stuðningstæki.
Einnig upplýsingar um hvað Krabbameinsfélagið Framför hefur að bjóða, viðfangsefni, baráttumál, stuðningur og starfsumhverfi. Þar er búið að setja upp ýmsar upplýsingar og mögulegar aukaverkanir eftir brottnám eða geisla – til dæmis hvernig tennur geta farið illa í lyfjameðferð, mögulegur úttaugaskaði og fingraverkir því þó þessar aukaverkanir komi ekki alltaf fram þá er möguleiki á því og um að gera að skilja hvað er á ferðinni, sem aftur getur slegið á óöryggi og óvissu.
Svo er bæklingur útgefin af Krabbameinsfélagi Höfuðborgarsvæðisins og þó hann sé ekki nýr af nálinni er þá er hann mjög upplýsandi.





Comments