top of page

Formannsgrein

  • Writer: Guðmundur Oddgeirsson
    Guðmundur Oddgeirsson
  • 19 hours ago
  • 3 min read

Um leið og ég þakka traustið að vera kosinn formaður Framfarar vil ég þakka fráfarandi formanni Guðmundi Páli Ásgeirssyni fyrir frábært starf. Nafni fer ekki langt, verður áfram með okkur í stjórn félagsins sem er ómetanlegt.

Ég kynnist Framför í janúar 2025 stuttu eftir að ég greindist með krabbamein í blöðruhálskirtlinum. Var kosinn í stjórn félagsins fyrir ári síðan og vá hvað stjórnin er samhent með mögnuðum stuðningi Stefáns framkvæmdastjóra Framfarar sem er límið í starfinu, sími hans er opinn allan sólarhringinn.


En hver er Guðmundur Oddgeirsson?

Fæddur í Reykjavík 25. mars 1957. Er hálfur Ólsari og hálfur Hornstrendingur.

Við J. Þórunn Harðardóttir eiginkona mín fluttum til Þorlákshafnar frá Reykjavík í júní árið 2000 með börn okkar sem ekki voru flutt að heiman. Börn eru 5, ein dóttir og fjórir synir, og barna og barnabörnin eru orðin 17, barnabarn er væntanlegt í maí.

Sem nærri má geta hefur 69 ára gamall maður reynt ýmislegt yfir ævina. Ólst upp í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík þar sem var mikið fjör enda mörg börn í hverri íbúð.

Í sveit í nokkur yndisleg sumur á Vopnafirði, er Húsasmíðameistari, hef verið með eigið verktakafyrirtæki og gert út trillu með vinum mínum.


Virkur í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík frá 1974 til 1995, í stjórn og formennsku. Kom að flestum stórslysaútköllum sem urðu á þessum árum eins og snjóflóðum og flugslysum.

Frá árinu 1986 tóku við 37 ár í verslunargeiranum (Hagkaup, Baugur, Hagar) lengst af sem framkvæmdastjóri Hýsing - vöruhótel og síðustu fjögur á starfstíma mínum tók ég að mér að byggja upp öryggis- og vinnuverndamenningu þriggja fyrirtækja í eigu Haga. Sá um skipulag og framkvæmd Covidaðgerða hjá fyrirtækjunum Aðföng, Bananar og Ferskar kjötvörur.

Hef haldið fyrirlestra hjá samtökum í atvinnulífinu og á ráðstefnum Vinnueftirlits Ríkisins m.a. um ofbeldi og áreitni vinnustöðum og mikilvægi þess að aðstoða erlenda vinnufélaga okkar við íslenskunám með erindinu „Að skilja íslensku rýfur einangrun“ svo eitthvað sé talið upp.

Hef alla tíð verið og virkur í félagsstarfi og unnið mikið í sjálfboðavinnu, er enn að því og nú sem stjórnarmaður hjá krabbameinsfélaginu Framför. Verið formaður í Lionsklúbbi í Lionsklúbbi Þorlákshafnar oftar en einu sinni og Umdæmisstjóri Lions og í fjölumdæmisstjórn. Það má nefna nefna stjórn og stjórnarformennsku Íbúðasamvinnufélagsins Elliða í Þorlákshöfn 2023 - 2026, sem rekur 24 íbúðir í parhúsum, var unninn í sjálfboðavinnu. Sinnt formennsku í starfsmannafélögum og stjórnmálafélagi.


Það má tala um annað en krabbamein. Á þessum stutta tíma sem ég hef verið í stjórn Framfarar hef ég haldið erindi um flugslysið í Ljósufjöllum, um björgun herþyrlu af Snæfellsjökli þar sem ég var leiðangurstjóri og svo erindi um vindmyllur. Stóð fyrir jeppaferð Hellisbúanna og heimsókn þeirra á hamfarasvæðið í Grindavík. Fleira er framundan á þessum nótum.


Bæjarstjórnarmálin í Ölfusi, kom fyrst að þeim kosningarárið 2006. Í bæjarstjórn í 8 ár. Nefndarseta í Skóla- og fræðslunefnd, Hafnarstjórn, Bygginga-skipulags- og umhverfisnefnd og í nokkrum millinefndum um ýmis málefni. Er nú áheyrnarfulltrúi í Skipulags- og umhverfisnefnd fyrir Íbúalistann.


Hér hefur verið rétt svo hlaupið yfir það helsta hjá mér. Fór á eftirlaun 67 ára og er að njóta þess í botn með konu minni og það er svo gefandi að geta stýrt algjörlega hvernig dagurinn í dag á að vera og að geta stutt við börnin, barnabörnin og barnabarnabörnin.

Er á góðum stað með mína krabbameinsgreiningu. Stuðningurinn sem ég hef fengið hjá Framför er ómetanlegur og því er það mikil ánægja að taka þátt í að kynna málefnið með félögum mínum hjá Framför fyrir þau félög sem þess óska.



 
 
 

Comments


bottom of page