top of page

Krabbameinsáætlun — hvað er það?

  • Krabbameinsfélag Íslands
  • 19 hours ago
  • 3 min read

Fólk sem tekst á við krabbamein stendur oft frammi fyrir stærstu áskorunum lífs síns. Bæði sjúklingar og aðstandendur vilja geta treyst því að fá bestu mögulegu meðferð sem stenst alþjóðlegar gæðakröfur. Á Íslandi erum við í fremstu röð þegar kemur að greiningu og meðferð krabbameina, en krabbameinsþjónusta er í stöðugri þróun og mikilvægt er að tryggja að hún haldi áfram að vera framúrskarandi.

Krabbameinsáætlanir eiga uppruna sinn hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), sem lagði til um aldamótin að lönd settu sér slíkar áætlanir til að takast á við aukinn fjölda krabbameinstilfella og áhrif þeirra á samfélagið. Þær fjalla um forvarnir, meðferðir, endurhæfingu og aðra þjónustu fyrir fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra. Markmiðið er að fækka dauðsföllum, auka lífslíkur og bæta lífsgæði.


Samhljóma stuðningur þingmanna

Á Íslandi er í gildi krabbameinsáætlun til ársins 2030. Hún á sér langa sögu, en byggir á vinnu ráðgjafarhóps sem starfaði á árunum 2013 til 2016 og Krabbameinsfélagið tók þátt í. Krabbameinsáætlunin er mikið framfaraskref, en hún hefur ákveðna galla. Til dæmis er hún ekki fjármögnuð og það vantar skýrar tímasetningar og skilgreinda ábyrgð. Þess vegna er hætta á að markmiðin náist ekki.

Aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum frá 2025-2029 var fyrsta málið sem heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, lagði fram á Alþingi. Krabbameinsfélaginu til mikillar ánægju naut hún samhljóma stuðnings þingmanna, þvert á alla flokka, þegar hún var samþykkt vorið 2025. Hún byggir á vinnu samráðshóps 15 fulltrúa úr heilbrigðiskerfinu, ráðuneytinu og hagsmunasamtökum, þar á meðal Krabbameinsfélaginu.

Með aðgerðaáætluninni má segja að krabbameinsáætlun hafi verið virkjuð. Aðgerðunum er forgangsraðað, skýrt er hver ber ábyrgð á þeim og hvernig á að meta árangur. Hún er þó einnig takmörkuð að því leyti að hún nær ekki yfir þætti á borð við húsnæði, tækjakaup eða lyfjakostnað. Einnig fylgir henni ekki fjármagn nema að mjög litlu leyti.


Krabbameinsáætlun skiptir máli

Krabbameinsfélagið hefur verið sá aðili sem hefur helst barist fyrir og haldið mikilvægi virkrar, fjármagnaðrar krabbameinsáætlunar á lofti og hefur gert það í mörg ár. Reynsla kollega okkar frá hinum Norðurlöndunum sýnir að slíkar áætlanir geta skipt miklu máli í baráttunni við krabbamein. Álag á heilbrigðiskerfið er nú þegar mikið og búist er við að það aukist verulega á næstu árum ef spár um fjölgun krabbameinstilfella ganga eftir.

Margt af því sem kemur fram í aðgerðaáætluninni er í samræmi við það sem við höfum lagt áherslu á í stefnumótun fyrir starf félagsins. Þar má til dæmis nefna aukna áherslu á forvarnir, gæðastýrða krabbameinsþjónustu og skýrari og samfelldari ferli fyrir þau sem greinast með krabbamein. Það er mat okkar hjá félaginu að hún sé frábært fyrsta skref í átt að virkri krabbameinsáætlun.


75 milljónir í tilefni af 75 árum

Það verður þó að teljast ólíklegt að markmið áætlunarinnar náist án aukins fjármagns, bæði til að ráða starfsfólk og vegna annars sem til þarf. Á aðalfundi félagsins 9. maí var því skorað á stjórnvöld að standa við markmiðin og tryggja að framtíðarsýn í krabbameinsmálum verði að veruleika, einkum með því að veita til þess nauðsynlegu fjármagni.

Hjá Krabbameinsfélaginu tökum við hlutverk félagsins sem bakhjarl fólks með krabbamein mjög alvarlega. Til að styðja við þessa mikilvægu áætlun hefur stjórn félagsins, í tilefni af 75 ára afmæli þess, ákveðið að veita allt að 75 milljónum til hennar. Þessi fjárveiting mun byggja á sérstöku samkomulagi við heilbrigðisráðherra og verður bundin skýrum áherslum og tímasettum markmiðum með reglulegri eftirfylgd. Með góðri samvinnu og skynsamlegri nýtingu fjármuna er hægt að tryggja að árangur í krabbameinsmálum á Íslandi verði áfram mjög góður, því lífið liggur við.


Á heimasíðu Krabbameinsfélagsins má nálgast aðgengilegar upplýsingar um krabbameinsáætlun og aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum.



 
 
 

Comments


bottom of page