Er ég með krabbamein? Fyrstu skrefin
- Krabbameinsfélagið Framför
- 19 hours ago
- 3 min read
Stundum er einhvern veginn svo flókið að taka fyrsta skrefið til að athuga hvort maður sé kominn með krabba í blöðruhálskirtilinn ... en það er ekki svo flókið og hér eru leiðbeiningar.
Við vitum ósköp vel að karlar eiga það til að gera lítið úr þessum hlutum og fyrir örfáum áratugum var þetta bara alls ekki rætt! Í dag heyrir fólk meira um krabbameins og þekkir jafnvel einhvern, sem hefur fengið blöðruhálskirtilskrabbamein.
Þá er gott að vinir, aðstandendur, makar, sambýlingar eða einhver stígi inní og ýti við manni enda er svo að einkenni um blöðruhálskrabba eru oft lítil eða jafnvel engin.
Afsakanir eru skiljanlegar
Þá koma þeir upp með alls konar afsakanir – jafnvel slappar eða skrýtnar - en má ekki leiða þær hjá sér heldur sýna þeim fullan skilning því fæstir eru að gera sér upp óöryggi eða jafnvel hræðslu. Þessar afsakanir eru oft svolítið skrýtnar en einmitt svakalega slappar þegar PSA-mæling er hundsuð með alvarlegum afleiðingum síðar.
Skrefin
Fyrst er að hafa samband við t.d. heimilislækni og biðja um að mæla PSA-gildi. Sumir læknar eru enn með efasemdir um ágæti PSA-mælinga en þær eru skársta vísbendingin um að eitthvað sé að gerast.
Oftast vísar læknir beint á að láta taka blóðprufu á spítala eða heilsugæslustöð, jafnvel í fyrirtækið Sameind. Þá er tekið blóð – alveg eins og margir fara í, t.d. þegar verið er að gefa blóð.
Ef síðan niðurstaðan úr PSA er svo lágt gildi að engin ástæða er til að fara lengra með þetta, þá er hægt að ganga glaður og sperrtur út í lífið, sloppin fyrir horn. Jafnvel svo brattur að hvetja aðra til að taka þessi fyrstu skref.
Næsta skref ef þarf ... líkur eru reyndar ekki miklar. Þegar rannsóknarstofan er búin að fá niðurstöðu um að PSA-gildið er hátt, hefur læknirinn eða krabbameinslæknir samband og fundur með þeim ákveðin. Í framhaldinu ákveður læknirinn að taka sýni og/eða senda í skanna.
Það er ekki svo vont miðað við að gera ekki neitt – heldur sigla inn í frekari og jafnvel óafturkræf veikindi.
Það verður aldrei nóg hamrað á því að hafa einhvern með sér í það viðtal – hvort sem er maki eða vinur. Ástæðan er að þegar maður fær slæm tíðindi eða sláandi niðurstöðu á svoleiðis fundi þá í raun heyrir maður ekki neitt, upplýsingarnar fara einhvern vegin framhjá.
Ef enginn aðstandendi er til staðar má alltaf hafa samband við t.d. Krabbameinsfélagið Framför og við reynum að aðstoða, jafnvel fara með á fundinn.
Ef eitthvað ... Ef síðan Gleason-gildin reynist of hátt mun læknirinn ræða framhaldið en það framhald getur verið af ýmsum toga og mjög mikil þróun í þeim málum. Hér verða bara nefnd þrjú dæmi.
Virk eftirlit. Það þýðir að framhaldið er sett í bið enda krabbameinið hægvaxandi. Er samt vaktað vandlega með reglulegum mælingum og sést þá hvort eða hvenær þurfi að taka á málum. Með virkni og dugnaði við að fylgjast með gæti biðin orðið án vandræða með full lífsgæði í mörg ár.
Brottnám. Oft var það kallað uppskurður enda voru á sínum tíma tveir skurðir sem voru lengi að gróa. Nú er öldin önnur, gerð eru nokkur lítil göt á magann, farið inn hann með róbóta, allt skoðað, blöðruhálskirtill fjarlægður.
Geislar. Svo eru aðrar aðferðir ef krabbinn er búinn að koma sér fyrir – geisli, hormónameðferð og fleira – en læknar fara yfir þau mál enda ekki fyrir leikmenn að segja of mikið um það.




Comments