top of page

Blái trefillinn

  • Krabbameinsfélagið Framför
  • 19 hours ago
  • 1 min read

Blár nóvember er þegar karlar eiga sviðið og sem fyrr var mikið lagt í nóvember 2025. Þá fer fram mikil kynning hjá Krabbameinsfélaginu Framför, hvað félagið gerir, hvað það vill koma inn hjá landanum – almennt að vekja fólk til umhugsunar, bæði hvað og hvenær menn eigi að kanna stöðu í sínum blöðruhálskirtli, hvernig eigi að snúa sér ef krabbinn er mættur og ekki síst að sýna fólki fram á að þegar menn fá greiningu þá sé það ekki stóra brottfararspjaldið því þróun á lyfjum, tækjum og þekkingu hefur tekið gríðarleg stökk síðasta áratuginn og þessi þróun er enn í gangi.


Í nóvember er gefið úr sérblað, sem dreift er í aldreifingu með Morgunblaðinu og þar má finna margar upplýsandi og áhugaverðar greinar ásamt viðtöl úr mörgum áttum. Kostnaðurinn af því kemur í gegnum auglýsingar í sérblaðinu og kunnum við þessum auglýsendum hinar allra bestu þakkir fyrir. Svo fer fram sala á barmnælunni Blái trefillinn sem Lyfja, Apótekarinn, N1 og Olís eru með sínum hillum. Það gerir okkur kleift að standa straum af kostnaðinum og við erum þessum fyrirtækjum mjög þakklát.


Loks var farið að koma félaginu og starfsemi þess á framfæri víðar. Mannlegi þátturinn á Rás1 hjá Rúv hefur sýnt okkur velvilja, langt gott viðtal við formanninn Guðmund Pál Ásgeirsson á Útvarp Sögu auk þess að reynt var við alla aðra fjölmiðla. Haldið var gott málþing, Göngudagur í Heiðmörk, auglýst víða og fleira.


Afraksturinn var góður, þá ekki bara náðist fyrir kostnaði heldur vakti og vekur félagið athygli á okkar starfi en líka annarra, sem geta komið að þessum krabba.



 
 
 

Comments


bottom of page