Fundargerð Aðalfundar Framför
- Krabbameinsfélagið Framför
- 19 hours ago
- 3 min read
Aðalfundur Krabbameinsfélagsins Framför fór fram þriðjudaginn 5. maí síðastliðin og hófst klukkan 14 í Hverafoldinni þar sem farið var yfir starfið á árinu 2025. Formaðurinn Guðmundur Páll Ásgeirsson setti fundinn og Henry Granz stýrði síðan af röggsemi og þekkingu í samræmi við allar reglur en Guðmundur Oddgeirsson var ritari.
Farið var yfir ársskýrslu fyrir 2025 og síðan ársreikning en Stefán Stefánsson framkvæmdastjóri fór yfir það efni, sem var samþykkt. Staðan félagsins er góð, engar skuldir og um 4,5 milljónir í sjóðum, sem búast má við að eflist þegar líður á árið – ekki síst fyrir mjög öflugan stuðning Krabbameinsfélags Íslands.
Alls mættu 10 manns á fundinn því margir voru önnum kafnir eða fastir í vinnu og gátu því ekki mætt. Ekki voru neinar lagabreytingar lagðar fyrir og ákveðið var að halda félagsgjöldum óbreyttum – 5.000 krónur – og verða þau fljótlega sendar á félagsmenn en sem fyrr eru þessi greiðsla valkvæð.
Þá var komið að kosningu stjórnar fyrir 2026-2027 og þá dró aðeins til tíðinda. Guðmundur Páll gaf ekki kost á sér til formanns og Guðmundur Oddgeirsson var kosinn formaður einróma.
Hólmfríður er sem fyrr varaformaður og Finnbogi Gústavsson verður gjaldkeri. Meðstjórnendur voru kosnir Guðmundur Páll fráfarandi formaður en Jakob Ragnar Garðarsson og Sigurgeir L. Ingólfsson eru sem fyrr meðstjórnendur. Nýr inní stjórn var síðan Hallur Illugason, góður fengur.
Í varastjórn eru áfram stórar kanónur eins og Þráinn Þorvaldsson, Henry Granz, Ólafur Arnalds, Gunnar Skagfjörð Gunnarsson ásamt Gylfa Gunnarssyni, sem færði sig úr stjórn í varastjórn.
Framkvæmdastjóri er Stefán Stefánsson.
Kosning á skoðendum reikninga var mikið rædd en bókhaldsstofan Verum sér um bókhald og endurskoðun. Gjaldkerinn Finnbogi mun skoða reikninga á millistigi og Ólafur W. Finnsson gaf einnig kost á sér sem skoðunarmaður reikninga og var það samþykkt.
Valdir voru fulltrúar til að sitja aðalfund Krabbameinsfélags Íslands þar sem Framför fer með eitt atkvæði. Ákveðið var að senda nýja formanninn Guðmund Oddgeirsson, framkvæmdastjórann Stefán og varaformanninn Hólmfríði en hún kemst ekki og Finnbogi gjaldkeri mætir.
Lögð var fram starfsáætlun fyrir 2026 og í sjálfu sér voru ekki miklar breytingar frá fyrra ári. Þó verður meira um kynningar og fræðslu, hvort sem er með heimsóknum víða um land til annarra aðildarfélaga, góðgerðafélaga eins og Oddfellow, Kiwanis- og Lionsklúbba en nú þegar liggja fyrir beiðnir um slíkar kynningar. Stéttarfélög hafa verið í sambandi við okkur svo búast má við fleiri fundum af ýmsum toga. Hellirinn og makafélagið Traustir makar verða áfram með reglulega fundi sína með gestum. Einnig er stefnt að frekar áherslu á skimun, í samræmi við reglur Evrópusambandsins og systurfélaga okkar í Evrópu.
Fjárhagsáætlun fyrir 2026 var einnig lögð fram og má búast við rekstrarafgangi eins og síðustu ár.
Undir liðnum önnur mál var rætt um hvort hægt sé að styðja við starfsemi Ljóssins, sem flytur í nýtt húsnæði í Grafarvogi í sumar. Ætlunin er þó enn að gefa veglegan grip til að minna á gott og farsælt samstarf við Ljósið. Hugmynd kom upp að gefa stóra gjöf eins og rafbíl en öllum hugmyndum var beint til nýrrar stjórnar.
Í lokin þakkaði nýkjörinn formaður Guðmundur Oddgeirsson fráfarandi formanni Guðmundi Páli Ásgeirssyni fyrir hans góðu störf.
Fundi var slitið klukkan 15.50.





Comments