top of page

Viðburðaríkur mars hjá Krabbameinsfélagi Íslands

  • Krabbameinsfélag Íslands
  • May 31
  • 3 min read

Hann var viðburðaríkur nýliðinn marsmánuður hjá Krabbameinsfélaginu með Mottumars-átakið í forgrunni þar sem sokkasala, skeggkeppni, hlaup og málþing var meðal annars á dagskrá.

Árni Reynir Alfreðsson, forstöðumaður markaðsmála og fjáröflunar hjá  Krabbameinsfélagsinu segir það ómetanlegt að finna stuðninginn og samstöðuna í samfélaginu.  ,,Mottumarssokkarnir í ár voru byggðir á hönnun Svavars Péturs ,,Prins Póló” eins og hann kallaði sig” segir Árni aðspurður um tildrög hönnunar sokkanna. ,,Berglind Häsler, ekkja Svavars og eiganda Havarí, hannaði Mottumarssokkana í samstarfi við Björn Þór Björnsson”. Hönnunin var byggð á kórónunni sem var helsta og íkoníska tákn Svavars. Hannaðir voru sokkar í fullorðins- og barnastærðum en eins og gjarnan var hjá Prins Póló sjálfum var óheft sköpunargleði við völd. Því var ákveðið að bjóða upp á þrjár viðhafnarútgáfur af sokkunum og er það í fyrsta skipti sem slíkt er gert.


Skeggkeppnin orðinn fastur liður

Árni segir gaman til þess að vita að skeggkeppnin sé orðinn fastur liður í Mottumars, árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins. ,,Þarna kristallast svo vel einstaklingsframtakið því þátttakendur safna ekki aðeins skeggi heldur einnig áheitum og styðja þannig með ómetanlegum hætti við starf Krabbameinsfélagsins. Hátt í 170 manns tóku þátt í Skeggkeppninni í ár og söfnuðust tæplega 9 milljónir króna.”

Verðlauna- og viðurkenningahátíð fór fram, 2. apríl, í húsnæði Rakarastofunnar Herramenn í Hamraborg í Kópavogi. Á hátíðinni voru veitt verðlaun til þeirra einstaklinga og liða sem stóðu sig best í söfnunni. ,,Stemningin er ávallt mögnuð, að hitta þessa menn sem hafa safnað bæði mottu og fjármagni, því þarna ræðum við lífið og tilveruna, hvað er að baki söfnuninni og hvernig þeir tengjast málefninu. Þakklæti og gleði er einkennandi fyrir þennan viðburð sem mér þykir mjög vænt um að geta tekið þátt í”.

Í einstaklingskeppninni varð Guðni Gíslason hlutskarpastur, Valdimar Kjartansson hreppti annað sætið og Andri Fannar Guðmundsson það þriðja.

Í liðakeppninni var það lið Mottumass sem stóð sig best, Guðnason varð í öðru sæti og í því þriðja varð Acro verðbréf.

Í einstaklingskeppninni varð Guðni Gíslason hlutskarpastur, Valdimar Kjartansson hreppti annað sætið og Andri Fannar Guðmundsson það þriðja.
Í einstaklingskeppninni varð Guðni Gíslason hlutskarpastur, Valdimar Kjartansson hreppti annað sætið og Andri Fannar Guðmundsson það þriðja.

Í liðakeppninni var það lið Mottumass sem stóð sig best, Guðnason varð í öðru sæti og í því þriðja varð Acro verðbréf.


Mottumarsdagurinn

Á Mottumarsdaginn hvatti Krabbameinsfélagið alla landsmenn af öllum kynjum, til að taka þátt og gera sér glaðan dag með fjölskyldu, vinum og vinnufélögum og vekja þannig athygli á baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. ,,Tilgangur Mottumarsdagsins er að allir karlar sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra finni stuðning okkar og samstöðu. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning öllum til handa sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Það er því mjög mikilvægt að senda þessi skilaboð út og láta vita af okkur”.


Metþátttaka í Mottumarshlaupinu

Mottumarshlaupið fór fram í annað sinn og segir Árni að þátttakan hafi farið fram úr þeirra björtustu vonum. ,,Alls tóku um 620 manns þátt í ár sem er 20% fjölgun á milli ára. Mottumarshlaupið náði þeim áfanga að vera eitt af stærstu 5 km götuhlaupum hérlendis” útskýrir Árni. ,,Hlaupinn var 5 km hringur í Fossvoginum frá Fagralundi í Kópavogi á þeim hraða sem hver og einn kaus, á tímatöku eða ekki, svo mátti líka stytta sér leið. Þetta hlaup er því fyrir alla sem er mikilvægt fyrir okkur til að geta boðið sem flestum að taka þátt og tengjast málefninu á þennan máta”.


Mikill áhuga á hádegismálþinginu

Á hádegismálþinginu „Krabba­mein í blöðru­háls­kirtli - líf og líð­an karla eft­ir með­ferð" var fjallað um þá fylgikvilla sem geta fylgt sjúkdómnum og meðferðinni. Einnig var fjallað um hvað hægt er að gera til að draga úr einkennum og bæta líðan. Árni segir að húsfyllir hafi verið hjá þeim í Skógarhlíðinni ásamt því að um 120 manns fylgdust með í streymi. ,,Okkar starf snýst um að ná til sem flestra og bjóða þjónustu okkar á sem fjölbreyttasta  máta. Málþingið var mjög vel sótt og miklar og góðar umræður sköpuðust”.


Stuðningur og samstaða

,,Það er ómetanlegt að finna stuðninginn og samstöðuna í samfélaginu í Mottumars og þeim velvilja sem við ávallt njótum” segir Árni. ,,Skilaboðin í ár voru á tenginguna á milli lífsstíls og krabbameina.  Herferðin var létt og leikandi en með alvarlegum undirtón þar sem vakin var athygli á að óheilbrigðar jafnt sem heilbrigðar lífsvenjur verða til á löngum tíma.  Við miðluðum skilaboðunum á fjölbreyttan máta um það hvernig hægt væri að draga úr líkum á krabbameinum með heilsusamlegum lífsstíl. Krabbamein tekur sér aldrei frí en markmið Krabbameinsfélagsins eru að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins – með og eftir krabbamein. Að því miðar öll starfsemi félagsins með traust bakland hjá almenningi og fyrirtækjum í landinu sem fjármagna starfið með stuðningi sínum” segir Árni að lokum.






Comments


bottom of page