Stuðningur og samskipti eru málið
- Hólmfríður Sigurðardóttir

- 19 hours ago
- 2 min read
Traustir makar hjá Krabbameinsfélaginu Framför styðja og efla maka karla sem greinst hafa. Það er gert með fræðslu, samveru og jafningastuðningi en makar hittast einu sinni í mánuði yfir veturinn. Krabbameinið hefur veruleg áhrif á líf og lífsgæði margra maka og getur haft djúpstæð áhrif á parið, því þau upplifa afleiðingarnar saman. Makarnir sem sækja fundi hjá Traustum mökum, greina frá því að það sé mikill léttir að hitta aðra sem skilja hvað þau eru að ganga í gegnum.
Það er sem betur fer framþróun í greiningu og meðferð við krabbameininu, enda lifa fleiri karlar lengur en áður eftir greiningu. Rannsóknir sýna að um 80% karla sem greinast hafa, leita einkum eftir stuðningi til maka sinna. Makarnir gegna því lykilhlutverki í að takast á við afleiðingar þess, um leið og þau standa frammi fyrir eigin áskorunum og þurfa að takast á við áfall ekki síður en karlinn. Makar sýna svo sannarlega styrk við þessar aðstæður og börnin vilja mæta foreldrum sínum af skilningi. Vinir og vinkonur vita þó stundum ekki hvað þau eiga að segja. Þá skiptir máli að sýna skilning, vera ekki smeyk við að nefna krabbameinið og leyfa fjölskyldu og vinum að fylgjast með, því þau eru mikilvægt stuðningsnet.
Lífið heldur sem betur fer áfram í flestum tilfellum. Sjúkdómurinn er því meira en meðferðin ein og sér, hann snertir daglegt líf og sambönd. Evrópusamtök karla sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli benda á að margir karlar og makar þeirra upplifi breytingar á sjálfsmynd, líðan og nánd í langan tíma. Við hjá Framför treystum því að opin samskipti, fræðsla og jafningastuðningur styrki pör og einstaklinga sem standa frammi fyrir þessu krabbameini og afleiðingum þess. Þannig sé stuðlað að bættum lífsgæðum þess fólks sem þau þiggja og veita. „Þú gengur aldrei einn“.




Comments