top of page

Sameiginleg ákvörðun

  • Krabbameinsfélagið Framför
  • 19 hours ago
  • 2 min read

Hvað vilja sjúklingar? Lækningu á þeirra krabba eða almennt? Sjúklingar gera sér grein fyrir að gamla lífið kemur ekki til baka svo þeir vilja hafa eitthvað að segja um hvernig skuli meðhöndla þá og jafnvel spá Lífsgæði í lokin.

Setja mætti upp tvo póla þar sem annars vegar sérfræðiþekking og hinu megin er sjúklingur.

Sérfræðingar vita hvað þarf að gera, vita raunverulega stöðu sjúklings, vita hvað er í boði, vita hvað er verið prófa, hvaða meðferð hentar og hver ekki.

Sjúklingur hins vegar þarf að spá í marga þætti, eins og fjölskylduna, fjárhaginn, hvað hann getur gert í framtíðinni og svo auðvitað lífsgæði.

Þessir pólar geta stangast á og hvorugur er líklegur til að vita allt um hvað er á hinum pólnum. Þá er næst hvernig og hvort hægt sé að láta þessi póla ná saman – er það gert með lækni, sérhæfðu hjúkrunarfólki eða sjúklingasamtökum með prentuðum upplýsingum, tölfræði eða mætti leyfa gervigreindinni að spreyta sig?

Þá kemur líka upp hvort læknir nái skilaboðum sjúklings hvað hann vill og öfugt, hvort sjúklingurinn skilji hvað læknirinn er að segja.


Þáttaka í ákvörðunum

Rannsókn Europa-Uomo sýnir að ef sjúkling finnst hann hafa tekið þátt í ákvörðun um sinn feril þá eru mun minni líkur á að hann sjái á eftir ákvörðunum. Þar segir líka að

ef læknir geri algerlega grein fyrir hvaða ákvarðanir þarf að taka þá eru 81% sammála en 19% ósammála.

ef læknir og sjúklingur ná samkomulagi um hvað þarf að gera þá eru 78% sammála en 22% ósammála.

ef læknir hjálpar sjúklingi að skilja upplýsingarnar þá eru 71% sammála en 29% ósammála.

ef læknir vill vita nákvæmlega hvernig sjúklingur vill vera með í ákvörðunum þá eru 69% sammála en 31% ósammála.

ef læknir segir sjúklingi að það séu fleiri valmöguleikar eru 68% sammála en 32% ósammála.

ef læknir skýrir nákvæmlega kosti og ókosti meðferðar eru 66% sammála en 34% ósammála.

ef læknir spyr sjúkling hvaða valkost hann vilji eru 61% sammála en 39% ósammála.

ef læknir og sjúklingur skoða rækilega og velta fyrir sér valkostum á meðferð eru 60% sammála og 40% ósammála.

ef læknir og sjúklingur velja ákvörðun sameiginlega eru 59% sammála en 41 ósammála.


Eftirsjá og sameiginleg ákvörðun

Samantekið er mikill meirihluti sammála um að þá sé líka minni eftirsjá á ákvörðun.

Engin eftirsjá 23%, miðlungseftirsjá 37% og mikil eftirsjá 40%.

Niðurstaðan er því að meiri sem sameiginlega ákvörðun læknis og sjúklings því betri er upplifun sjúklings varðandi Lífsgæði og því minni verður eftirsjá.



 
 
 

Comments


bottom of page