top of page

Hellirinn og heimsóknir

  • Krabbameinsfélagið Framför
  • 19 hours ago
  • 2 min read

Hellirinn, hittingur félaga í Framför, er alla fimmtudaga í Hverafold 1-3 í Grafarvogi þar sem Krabbameinsfélagið Framför er með aðsetur. Hellirinn opinn frá 16 til 18 en menn mæta jafnvel upp úr klukkan 14 og þá er masað inni í eldhúsi, sem er alltaf góður fundarstaður. Þó formlega sé opið til klukkan 18 þá stundum er setið lengur við.

Oft er bara þannig að við kallarnir hittumst, ræðum þjóðfélagið í bland við skemmtilegar og stundum sannar sögur en ræðum líka ýmis mál sem herja á okkur og ferla okkar í baráttunni við krabbamein í blöðruhálskirtli. Svo skipuleggjum við stundum heimsóknir og fáum þá til okkar fyrirlesara eða gesti af ýmsum toga.


Líflegar heimsóknir

Brakkasamtökin riðu á vaðið í janúar þar sem Hrefna Eyþórsdóttir og Jóhanna Lilja Eiríksdóttir sögðu okkur allt um Brakka (BRCA), hvað við þyrftum að skoða, hvernig við getum fengið að vita hvort við séum arfberar og margt fleira. Mjög áhugaverð heimsókn og þær stöllur léku á als oddi þrátt fyrir erindið væri alvarlegt.


Rannveig Traustadóttir Prófessor Emirita úr Háskóla Íslands, fór yfir hvernig hún náði tökum á sínu krabbameini með því að neita lyfjagjöf og fór frekar að íhuga hvernig hún gæti náð tökum með mataræði og efnum úr náttúrunni, t.d. Salvestrol. Sagði líka meðal annars frá þegar hún fór í mælingu til að vita hvað líkami sinn væri gamall, óháð aldri.


Guðmundur Oddgeirsson, þá meðstjórnandi í Framför, var með mikla sýningu á myndum og myndböndum þegar hann að eigin sögn og alltaf jafn hógvær „bjargaði amríska hernum með aðra höndina bundna fyrir aftan bak“. Erindið var um þegar hann og félagar hans í Flugbjörgunarsveitinni voru fengnir til að aðstoða varnarliðið á Keflavíkurvelli til að koma þyrlu, sem hafði hrapað á Snæfellsjökli, aftur í gang.


Erindið vakti mikla lukku og menn vildu meira. Þá var sett upp önnur sýning þegar hann og félagar hans komu að flugslysinu í Ljósufjöllum. Varpað var upp myndum og fleiru tengt slysinu. Áður en Guðmundur setti upp sýninguna athugaði hann hvort einhver af okkur körlunum væri tengdur slysinu og fólki, sem lenti í því. Svo reyndist vera svo Guðmundur fór fyrst yfir fyrirlesturinn með þeim og fékk leyfi.


Guðmundur var ekki hættur og hélt fyrirlestur um vindmyllur - þá ekki hvort hann væri með eða á móti þeim, heldur vandaðar upplýsingar um kosti og galla, hvernig staðið væri að uppsetningu vindmylla í Evrópu og fleira.



 
 
 

Comments


bottom of page