top of page

Tannheilsa og blöðruhálskrabbamein

  • Writer: Þráinn Þorvaldsson
    Þráinn Þorvaldsson
  • May 31
  • 3 min read

„Eitthvað er að gerast með tennurnar þínar,“ sagði tannlæknirinn minn þegar ég kom eitt sinn í reglubundið eftirlit. „Hefur þú undanfarið á einhvern hátt breytt öðruvísi?“ Ég sagði svo ekki vera. Sama matarræði, tannhirða sem áður. Tannlæknirinn sagði að eitthvað væri óvenjulegt, því tennurnar væru að grotna niður. Hann sagði mig líklega þurfa þrjár eða fjórar tannígræðslur.


Tengsl milli geisla og hrörnun

Jú, ég sagði tannlækninum eitt hafa verið óvenjulegt. Síðla árs 2019 hafði ég farið í geisla- og hormónahvarfsmeðferð vegna blöðruhálskrabbameins. Þeirri meðferð lauk fyrri hluta árs 2020. Ég bað tannlækninn, sem myndað hefur reglulega tennur mínar, um að athuga hvenær þessi hrörnun hefði hafist. Í ljós kom að myndir sýndu það hafa verið um ári eftir að ég lauk meðferðinni. Ég spurði hvort vitað væri um tengsl á milli geisla- og hormónahvarfsmeðferðar og tannheilsu. Tannlæknirinn sagðist vita að slík tengsl væru á milli geislameðferðar við krabbameini í höfði og hálsi en hann vissi ekki um slík áhrif af geisla- og hormónahvarfsmeðferð við blöðruhálskrabbameini. En ef fólk væri upplýst um þessi mögulegu tengsl og segði honum frá því að það væri að fara í meðferð, myndi hann gera sérstaklegar fyrirbyggjandi ráðstafir. Ég hef síðan spurt nokkra menn sem greinst höfðu með blöðruhálskrabbamein og höfðu farið í geisla- og hormónahvarfsmeðferð. Í þeim hópi voru menn sem  kvörtuðu um vandamál vegna tanna.


Gervigreindin gróf upp rannsókn

Ég spurði gervigreindina hvort til væri rannsókn sem staðfesti þessi tengsl. Hún var til og sýndi að karlar með blöðruhálskirtilskrabbamein sem fengu hormónahvarfsmeðferð (Androgen Deprivation Treatment - ADT) voru þrisvar sinnum líklegri til að þróa með sér tannholdssjúkdóma samanborið við þá sem ekki fengu slíka meðferð.

Þessi rannsókn, sem birt var í The Journal of Urology í mars 2007, ber heitið "The Effect of Androgen Deprivation Therapy on Periodontal Disease in Men With Prostate Cancer" og var framkvæmd af prófessor Pouran Famili og samstarfsfólki við University of Pittsburgh.


🔬 Helstu niðurstöður rannsóknarinnar:

  • Rannsóknin tók til 68 karla með blöðruhálskrabbamein; 41 þeirra höfðu fengið ADT í að meðaltali 1,5 ár en 27 höfðu ekki fengið slíka meðferð og þjónuðu sem samanburðarhópur.

  • Tíðni tannholdssjúkdóma var 80,5% hjá þeim sem fengu ADT, samanborið við 3,7% hjá þeim sem ekki fengu meðferðina.

  • Eftir að hafa leiðrétt fyrir öðrum þáttum sem geta haft áhrif á þróun tannholdssjúkdóma, svo sem aldur og reykingar, kom í ljós að karlar sem fengu meðferðina á ADT voru, eins og áður sagði, þrisvar sinnum líklegri til að þróa með sér tannholdssjúkdóma samanborið við þá sem ekki fengu meðferðina.

🦷 Klínískar ábendingar:

  • Þessar niðurstöður benda til þess að ADT geti haft neikvæð áhrif á munnheilsu, sérstaklega varðandi tannholdssjúkdóma.

  • Höfundar rannsóknarinnar leggja til að karlar sem hefja ADT fari í reglulegt eftirlit hjá tannlækni til að greina og meðhöndla tannholdssjúkdóma snemma.

  • Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem tannholdssjúkdómar geta haft áhrif á almenna heilsu og lífsgæði.


Þarf ekki að ráðleggingar til að koma í veg fyrir svona?

Nú hef ég fengið fjórar tannígræðslur með þeim óþægindum og kostnaði sem því fylgir og fleiri tennur bíða viðgerðar. Sem betur fer létta Sjúkratryggingar undir kostnaði. Ég hafði aldrei heyrt um mikilvægi sérstakrar tannhirðu í tengslum við hormónahvarfsmeðferð þegar ég fór í meðferð. Ég hef leitað að því hvort þessi tengsl hafi verið rannsökuð hér á landi en hef engar slíkar upplýsingar fundið.

Mér var ekki ráðlagt að gæta að tannheilsu áður en ég fór í meðferð. Þarf ekki að bæta tannhirðuumönnun við ráðleggingar til þess að koma í veg fyrir hugsanlegar aukaverkanir eftir geisla- og hormónahvarfsmeðferð vegna meðferðar við krabbameini í blöðruhálsi? Þótt þetta sé ef til vill ekki staðfest með víðtækum rannsóknum, á ekki að láta sjúklinginn að njóta vafans?

 

Þráinn Þorvaldsson

stjórnarmaður í Krabbameinsfélaginu Framför


Þráinn og Hinrik Greipsson. Þeir félagar störfuðu með Oddi Benediktssyni sem hafði frumkvæði að stofnun Krabbameinsfélagsins Framfarar árið 2007 og hafa síðan starfað að málefnum manna sem greinst hafa með blöðruhálskrabbamein.
Þráinn og Hinrik Greipsson. Þeir félagar störfuðu með Oddi Benediktssyni sem hafði frumkvæði að stofnun Krabbameinsfélagsins Framfarar árið 2007 og hafa síðan starfað að málefnum manna sem greinst hafa með blöðruhálskrabbamein.

コメント


bottom of page