top of page

Enn meira kynlíf og enn meiri nánd

  • Krabbameinsfélagið Framför
  • May 31
  • 1 min read

Kynlíf og nánd námskeiðin hafa fest sig í sessi og nú ætlar Krabbameinsfélagið Framför að koma með þriðja námskeiðið. 


Um 80% áhyggjur kvenna sem eiga karla sem greinast með krabbamein í blöðruhálsikirtli er að þeir séu að fara deyja á meðan 80% áhyggjur karlanna er að geta ekki sinnt maka sínum kynferðislega. 


Sannarlega áhugaverð niðurstaða í rannsókn.  Þá lögðu karlarnir í Framför heilann í bleyti og komu upp með hugmynd að námskeiði eða vinnusmiðju þar sem ekki væri bara rætt og farið yfir kynlíf eftir krabba heldur nándin tekin með í reikninginn. 


Nú hafa verið haldin tvö Kynlif & Nánd námskeið. Þáttakendur eru um 12 pör og tekur námskeiðið um 2 tíma með kaffipásu.  Sá sem þetta skrifar tók þátt í seinni námskeiðinu og fannst mjög áhugavert.  Ekkert pukur og feimni því þrautreynt fólk stýrði af þekkingu og lipurð.  Námskeiðið nýtist mörgum og getur stuðlað að betri lífsgæðum, sem allt snýst um – að lífið snýst ekki bara um líf heldur lífsgæði.




Kommentarer


bottom of page