Mótorhjól og blöðruhálskrabbi
- Krabbameinsfélagið Framför
- 19 hours ago
- 1 min read
Mótorhjól þykir oft karlægt sport þó margar konur láti líka til sín taka.
Í Morgunblaðinu í maí 2025 er sagt í máli og myndum frá því að búast megi við prúðbúnum mótorhjólamönnum á klassískum gamaldags hjólum á ferð um Reykjavík. Viðburðurinn kallast The Distinguished Gentleman's Ride og á rætur sínar að rekja til Ástralíu en íslendingarnir hafa gert þetta árlega frá 2018.
„Aðalástæðan fyrir þessu er að þetta er góðgerðarviðburður til að vekja athygli á heilsu karlmanna, sem veitir nú ekki af. Það er verið að beina sjónum að geðheilsu og krabbameini í blöðruhálskirtli. Fólk getur safnað áheitum og það rennur allt til alþjóðlegu Movember-góðgerðarsamtakanna sem vinna að því að auka athygli á heilsu karlmanna í heiminum. Einnig sjá þau um alls kyns forvarnir og rannsóknir á krabbameini og öðrum sjúkdómum,“ segir Sigmundur Traustason, einn af skipuleggjendum Hefðarfólks á hjólum.
Krabbameinsfélagið Framför mun einmitt í sumars hittast við Hellinn í Grafarvogi þar sem menn mæta á sínum mótorfákum, sýna gripina og bera saman bækur sínar og mótorhjólin. Það verður tilkynnt um það síðar, nú eru menn inni í bílskúr að pússa djásnin sín.




Comments