top of page

Brottnám á Gíbraltar stjórnað frá Englandi

  • Krabbameinsfélagið Framför
  • 19 hours ago
  • 1 min read

Þegar maður hélt að maður hefði séð allt kemur eitthvað nýtt. Á visir.is þann 6. mars síðastliðinn var sagt frá grein í enska blaðinu Guardian um að skurðlæknir í London hefði stýrt með róbóta (þjarka) uppskurði, sem fram fór á Gíbraltar, sem er við Miðjarðarhafið og í 2.400 kílómetra fjarlægð.


Þannig var að breti, sem hefur verið búsettur á Gíbraltar í 40 ár, þurfti að láta fjarlægja blöðruhálskirtilinn en það þýðir yfirleitt ferðalög til Madríd eða Englands. Skurðlæknirinn Prokar Dasgupta settist þá í Englandi með sérstakt stjórnborð og stýrði í gegnum það þjarka sem staðsettur var á skurðstofu á Gíbraltar en aðeins liðu 0,06 sekúndur frá stýringu í Englandi og þjarksins á Gíbraltar.

Í fréttinni á mbl.is kemur fram að það eigi að endurtaka leikinn enda eru skurðlæknar mjög spenntir. Veit nú ekki hvenær þetta verður hægt á Íslandi en landsbyggðin gæti kannski einhvern tímann losnað við umstangið að fara til Reykjavíkur. Hver veit.



 
 
 

Comments


bottom of page