Upplýsingar á 88 tungumálum og öflug gervigreind
- Krabbameinsfélagið Framför
- 19 hours ago
- 1 min read
Krabbameinsfélagið Framför er aðili að Europa-Uomo sem eru samtök evrópskra sjúklingafélaga fyrir menn með krabbamein í blöðruhálskirtli. Þetta eru mjög öflug samtök sem halda reglulega fundi þar sem kynnt er það nýjasta og besta sem gerast á þessum vettvangi.
Tungumálin
Á heimasíðu Europa-Uomo ( www.europa-uomo.org ) má finna margt fróðlegt úr starfi Uomo, eins og rannsóknir og fréttir. Þar er líka boðið uppá að þýða innihald heimasíðunnar á um 88 tungumálum, líklega fleirum en við þekkjum. Þá er farið í hnappinn Translate ofarlega á síðunni og tungumálið valið. Athugið að þetta er vélþýðing og alveg ágæt þó hún þekki ekki öll blæbrigði íslenskunnar – alveg nóg samt.
Gervigreindin
Neðst á síðunni er lítill blár hringur með gervigreindarmerki. Ef smelt er á hann koma upp stutt skilaboð á ensku en neðarlega er spurt "Write your message here …". Það er hinsvegar hægt að spyrja á íslensku um næstum hvað sem er varðandi blöðruhálskrabbamein og svarið kemur á íslensku. Þýðingin er nokkuð góð og bætir sig jafnt og þétt.
Hvetjum alla til að prófa.



Comments