Árið 2014 var í samstarfi við Krabbameinsfélagið stofnaður stuðningshópurinn Frískir menn, sérstakur hópur fyrir menn sem hafa greinst með blöðruhálskrabbamein en valið virkt eftirlit í stað þess að fara í meðferð. Frískir menn er hluti af starfsemi Krabbameinsfélagins Framfarar.
Hópurinn er lokaður hópur einstaklinga sem hittist fjórum sinnum á vetri í september, nóvember, febrúar og maí. Þátttakendur hafa lýst yfir mikilli ánægju með hópinn og það trúnaðarsamband sem myndaðist milli félaga.

Mikilvægt að ræða í trúnaði
Nánd og persónulegt samband skiptir miklu máli fyrir menn sem greinst hafa með krabbamein. Mikilvægt er að fá tækifæri til þess að ræða í trúnaði við aðra menn í sömu stöðu. Nú er ætlunin að fara inn á nýjar brautir með starfsemina og nota nýjustu tækni í samskiptum þ.e. að hittast eingöngu á netinu. Einnig er markmiðið að gera mönnum utan höfuðborgarsvæðisins auðveldara að taka þátt í starf stuðningshópsins óháð búsetu.
Fundarefni verður eftirfarandi:
Hringborðið: hver og einn segir frá reynslu sinni og stöðu.
Fróðleikur sem þátttakendur hafa aflað sér um virkt eftirlit og krabbamein.
Annað sem mönnum býr í brjósti.
Stundum taka þátt sérfróðir aðilar sem kynna mál og svara fyrirspurnum.
Viljum einstaklinga vítt og breytt um landið
Framför leitar að 12 einstaklingum vítt og breytt um landið til þess að vera stofnendur fyrsta nethópsins sem við köllum vinahóp. Markmiðið er að síðar verði 15 til 20 menn að hámarki í hópnum. Ef þú hefur áhuga á því að vera einn af stofnendum þessa fyrsta nethóps, vinsamlega skráðu þig hér www.framfor.is/ve-nethópur.
Við minnum á að alltaf hægt er að hafa samband við Framför í þjónustusímanum 5515565 eða með tölvupósti á gudmundur@framfor.is. Nánari upplýsingar á www.framfor.is/ertuivirkueftirliti