Krabbameinsfélagið Framför, félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli, maka þeirra og aðstandendur.
Krabbameinsfélagið Framför starfar á landsvísu sem sjálfstætt stuðnings- og áhugamannafélag og er aðildarfélag í Krabbameinsfélagi Íslands og í samstarfi við Ljósið endurhæfingarmiðstöð (einn stjórnarmaður kemur frá þeim).

Megin verkefni félagsins eru:
Að ljá körlum með krabbamein í blöðruhálskirtli rödd í almennri umræðu og tala þeirra máli við yfirvöld.
Að gefa út fræðsluefni um krabbamein í blöðruhálskirtli og fylgikvilla þess, bæði fyrir sjúklingana sjálfa og fyrir aðstandendur.
Stuðla að betri lífsgæðum hjá körlum sem greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra aðstandendum.
Að skipuleggja fjölbreytt félagsstarf fyrir karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra aðstandendur.
Halda uppi fræðslu um krabbamein í blöðruhálskirtli, við greiningu og eftir meðferðir.
Vinna að því að styrkja heilsugæslu, stuðla að forvörnum og efla snemmgreiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli.
Hvað er félagið að gera?
Vefsíður – framfor.is og framforiheilsu.is
Samningur við þvagfæraskurðlækna
Bæklingar
Hellirinn – Samfélagsmiðstöð
Jafningjastuðningur – í síma eða hitting
Tengiliðakerfi – nöfn fyrir nýgreinda
Framför í heilsu - prógröm
Fjáröflun fyrir verkefnum – Blái trefillinn / styrktarvinir / styrkir
Fyrirlestrar
Veftímarit