Ljósið flytur í stærra húsnæði
- Ljósið
- May 22
- 2 min read
Ljósið hefur nú starfað í rúm 20 ár, en þar er boðið upp á þverfaglega heildræna þjónustu til að endurhæfa og styðja við þá sem greinast með krabbamein. Ljósið heldur úti öflugu starfi bæði í húsnæði Ljóssins en einnig í gegnum fjarfundarbúnað fyrir landsbyggðarfólk eða aðra sem ekki geta sótt þjónustu á Langholtsveginn. Einnig er mikil þjónusta í boði fyrir aðstandendur, sem oft eiga erfitt með að fóta sig í þessum nýju og erfiðu aðstæðum.
Ljósið er heilbrigðisstofnun, viðurkennd af Landlæknisembættinu. Mikið þróunarstarf hefur verið unnið frá upphafi og stöðugt er verið að leita leiða til að aðlaga starfið að þörfum þeirra sem þangað sækja. Starfsfólkið býr yfir mikilli faglegri þekkingu á málefninu.
Við viljum tryggja að krabbameinsgreindir á Íslandi, aðstandendur þeirra og í raun samfélagið allt geti verið viss um að Ljósið sé til staðar um ókomna tíð og veiti þá allra bestu endurhæfingu sem völ er á.
Ljósið flytur í haust
Frá upphafi höfum við sem stjórnum Ljósinu þurft að sjá alfarið um kostnað við húsnæði Ljóssins. Gott orðspor Ljóssins, ásamt þeirri staðreynd að sífellt fleiri greinast með krabbamein, hefur gert það að verkum að þjónustuþörfin hefur aukist gífurlega.
Þessi mikla aðsókn veldur því að húsnæði okkar á Langholtsveginum er orðið of lítið og þröngt þrátt fyrir stækkun tvisvar sinnum en samanlagt telur það um 850 fermetra. Undanfarin ár höfum við sett fram eftirfarandi sviðsmyndir varðandi nýtt húsnæði:
Að kaupa hentugt húsnæði sem væri hægt að aðlaga að starfsemi Ljóssins.
Að fá lóð á höfuðborgarsvæðinu og byggja nýtt hús.
Að finna hentugt leiguhúsnæði í langtímaleigu.
Síðasta sviðsmyndin varð fyrir valinu þegar við fundum hentugt hús að Gylfaflöt 5 í Grafarvogi. Við erum því stolt og þakklát að geta sagt frá því að Ljósið fékk húsið afhent þann 1.febrúar síðastliðin. Það rými sem starfsemin fær eru 1300 fm, með möguleika á stækkun upp í 1700 fm í komandi framtíð. „Þetta verður gífurleg breyting og miklu rýmra á allan hátt. Ljósið mun leigja húsnæðið, en hefur forkaupsrétt á því ef vilji er fyrir hendi til að kaupa það. Húsið stendur við Gylfaflöt 5 í Grafarvogi, nóg af bílastæðum og fallegt útivistarsvæði í næsta nágrenni. Gera þarf töluverðar breytingar á húsinu þannig að það henti þeirri endurhæfingu sem Ljósið sinnir og það má ætla að sú vinna taki nokkra mánuði en vonandi er hægt að flytja starfsemina fyrir næsta haust “ segir Erna Magnúsdóttir framkvæmdastýra Ljóssins.
Þetta mun gjörbreyta aðstöðu til þjónustu og skapa svigrúm til áframhaldandi þróunar á starfseminni, þjónustuþegum til hagsbóta. Þetta hefði ekki tekist nema fyrir öflugan stuðning velunnara Ljóssins.
Við í Ljósinu viljum leggja ríka áherslu á eitt: töfrar Ljóssins búa ekki í veggjum, heldur í fólkinu og andrúmsloftinu. Markmiðið í nýja húsnæðinu er að skapa hlýtt, öruggt og aðgengilegt rými sem heldur utan um fólk, líkt og Ljósið hefur alltaf gert. Við munum öll leggja okkar af mörkum til að gera nýja húsið að heimili Ljóssins, þar sem hlýja, stuðningur og von fá áfram að blómstra.





Comments