top of page

Hvað er PSA og Gleason?

  • Krabbameinsfélagið Framför
  • May 22
  • 2 min read

Orðin PSA og Gleason koma oftar en ekki fyrir þegar talað er um krabbamein í blöðruhálskirtli.


Hvað þýða þessi orð?

PSA-mæling hefur verið notuð til að skima fyrir bólgu í blöðruhálskirtli. PSA er mælanlegt í blóði og segir til um magn eggjahvítuefnis sem kallast Prostate Specific Antigen en frumur blöðruhálskirtilsins framleiða þetta eggjahvítuefni.


Hafa ber í huga að PSA-mæling er ekki mæling á krabbameini, heldur mælir bara bólgu í t.d. blöðruhálsikirtli. Sumir mælast með hátt PSA, 10 og uppúr. PSA hækkar með aldrinum, því hærra sem PSA-gildið er, þeim mun meiri líkur eru á að krabbamein sé til staðar í blöðruhálskirtlinum. Ef það gerist tekur læknir líklegast ákvörðun um að senda í frekari skoðun, t.d. skanna eða þreifingu, þar sem kemur frekar í ljós hvort krabbinn sé á ferðinni. Læknir skoðar líka hvort PSA-gildi hækka hratt því það eru ekki góð merki.

Aftur - hafa ber í huga að PSA-gildi segja ekki að fólk sé með krabbamein, heldur er það oft fyrstu merki sem hægt er að mæla. Höfum líka í huga að PSA-mæling segir ekki allt og enn talin af sumum læknum ekkert sérstök mæling en er þó af mörgum talin “skársta” eða “besta” aðferðin í dag. Hinsvegar eru víða um heim verið að vinna í mun betri aðferðum og þegar þær hafa verið prófaðar og samþykktar munu þessar nýju aðferðir örugglega verða teknar upp á Íslandi.


GLEASON-gráða kemur þá yfirleitt næst ef PSA gildið er ákveðið hátt og læknar vísa manni áfram. Þegar krabbameinsfrumur eru skoðaðar í smásjá má sjá að þær hafa mismunandi mynstur eftir því hversu miklar líkur eru á að þær séu hraðvaxandi. Mynstrin fá gráðu frá 1 upp í 5, svonefndar Gleason-gráður. Gráða 3 eða hærri bendir til krabbameins en gráða á bilinu 1 til 2 telst ekki krabbamein.

Ef krabbameinsfrumur finnast í sýnum frá þér er þeim gefin Gleason-gráða sem segir til um hversu illkynja krabbameinið er, það er að segja hversu miklar líkur eru á því að það vaxi og dreifi sér út fyrir kirtilinn.

Læknar geta útskýrt nánar og fleira til.



 
 
 

Comments


bottom of page