Hlutverk Krabbameinsfélagsins Framför - hvert get ég leitað?
- Krabbameinsfélagið Framför
- May 31
- 2 min read
Krabbameinsfélagið Framför, félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda, var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karla með krabbamein í blöðruhálskirtli, maka þeirra og aðstandendur.
Krabbameinsfélagið Framför starfar á landsvísu sem sjálfstætt stuðnings- og áhugamannafélag og er aðildarfélag í Krabbameinsfélagi Íslands og í samstarfi við Ljósið endurhæfingarmiðstöð (einn stjórnarmaður kemur frá þeim). Auk þess kynnir félagið öll úrræði, sem mögulegt að gætu komið sér vel.
Megin verkefni félagsins eru:
Að ljá körlum með krabbamein í blöðruhálskirtli rödd í almennri umræðu og tala þeirra máli við yfirvöld.
Að gefa út fræðsluefni um krabbamein í blöðruhálskirtli og fylgikvilla þess, bæði fyrir sjúklingana sjálfa og aðstandendur.
Stuðla að betri lífsgæðum hjá körlum sem greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra aðstandendum.
Að skipuleggja fjölbreytt félagsstarf fyrir karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra aðstandendur.
Halda uppi fræðslu um krabbamein í blöðruhálskirtli, við greiningu og eftir meðferðir.
Vinna að því að styrkja heilsugæslu, stuðla að forvörnum og efla snemmgreiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli.
Hvernig er það svo gert?
Vefsíður – www.framfor.is og www.framforiheilsu.is – mjög mikið af upplýsingum.
Samningur við þvagfæraskurðlækna – vinna með þeim að öllum vinklum.
Bæklingar – Almennt um krabbamein í blöðruhálsi – Næstu skref – Spurningar við greiningu.
Hellirinn – Samfélagsmiðstöð, þar sem karlar hittast, ræða málin og læra hver af öðrum með reynslusögum og fleiru.
Verkefni hjá Framför:
Samtal á öllum stigum. Við menn sem hafa verið í sporunum. Sími 5515565 og netfangið framfor@framfor.is
Jafningjastuðningur – í síma eða hitting.
Tengiliðakerfi – nöfn fyrir nýgreinda
Framför í heilsu - stuðningsumhverfi við greiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli www.framforiheilsu.is
Fjáröflun fyrir verkefnum – Blái trefillinn / styrktarvinir / styrkir
Fyrirlestrar og kynningar
Veftímarit – Hellisbúi.is þar komið er á framfæri alls konar fróðleik og sögum.

Comentarios